Óháð ráðgjöf

Óháð ráðgjöf

Við veitum óháða ráðgjöf um UT og heilbrigðisverkfræði. Hundruðir ánægðra viðskiptavina. Hafðu samband við okkur.

Excel námskeið fyrir alla

Excel námskeið fyrir alla

Excel er mikilvægasta verkfæri skrifstofufólks, bókara, endurskoðenda, stjórnenda, verkfræðinga, vísindamanna og...

Árangursrík verkefnastjórnun

Árangursrík verkefnastjórnun

Afar gagnlegt og hnitmiðað nám fyrir þá sem koma að stjórnun verkefna, hvort sem þau eru stór eða lítil. Þrautreynd...

  • Óháð ráðgjöf

    Óháð ráðgjöf

  • Excel námskeið fyrir alla

    Excel námskeið fyrir alla

  • Árangursrík verkefnastjórnun

    Árangursrík verkefnastjórnun



Námskeið á næstunni

Smelltu á "Sjá öll námskeið" neðst í töflunni til að sjá fleiri námskeið eða notaðu valmyndina til vinstri.

Námskeið Hefst Endar Tími Verð
( )

iPad spjaldtölvur og (Apple)

 

Spjaldtölvur eru nú helsta verkfærið á heimilum og til að leita upplýsinga, horfa á myndir, leika sér og til aðgangs að eigin upplýsingum sem aðallega verða geymdar á netinu. Fjöldi forrita er til sem gera það mögulegt að nota spjaldtölvur með sambærilegum hætti og venjulega fartölvu og hægt er að tengja lyklaborð og ytri geymslur við þær flestar. Af þessum sökum hafa spjaldtölvur einnig verið að ryðja sér til rúms innan fyrirtækja til ýmissa verka.

Á námskeiðinu er kennt að nota algeng spjaldtölvuforrit, að sækja önnur forrit (öpp). að tengjast þráðlausu neti, setja upp tölvupóst, stilla orkusparnað, tryggja öryggi spjaldtölvunnar og breyta algengum stillingum. Meðal forrita sem lært er að nota þá má nefna kortaforrit, forrit til að skoða (löglega) sjónvarpsþætti, fréttasíður og margt fleira áhugavert. Kennd er notkun myndavélanna í spjaldtölvunni og vinnsla ljósmynda. Eftir því sem tíminn leyfir er kennt að nota algegn forrit í iPad.

Á námskeiðinu er tekið tillit til óska þátttakenda um efni sem þeir vilja læra um iPad spjaldtölvur og iPhone síma.

Markmið

Að námskeiði loknu á þátttakandinn að hafa öðlast þekkingu og öryggi við notkun spjaldtölvu við upplýsingaleit og skemmtun.

Fyrir hverja

Námskeiðið er fyrir alla sem nota, eða vilja nota, spjaldtölvu til gagns og gamans. Ekki er krafist tölvuþekkingar umfram það að geta farið á Internetið sér til gagns.

Leiðbeinendur

Aðaleiðbeinandi er Halldór Kristjánsson en hann hefur notað spjaldtölvur og snjallsíma frá upphafi og er mjög fróður um notkun þeirra. Aðrir leiðbeinendur á námskeiðinu hafa allir mikla reynslu af því að nota spjaldtölvur og farsíma með iOS stýrikerfinu.

Hafðu tölvuna með

Þátttakendur eru beðnir að hafa iPad (Apple) spjaldtölvu með sér, fullhlaðna (má hafa hleðslutæki með) og tilbúna til notkunar.

Umsagnir þátttakenda

Alveg frábært námskeið sem opnaði nýjan heim fyrir mér. Gerði mér enga grein fyrir hvað þetta er fullkomið tæki!

Frábær kennsla, létt og skemmtilegt andrúmsloft og fullt af ábendingum sem munu gagnast mér.

 

Áskilinn er réttur til að breyta tímasetningum og fresta námskeiði ef rík ástæða er til. Lýsingar eru með fyrirvara um hugsanlegar villur sem kunna að leynast í textanum. Hægt er að bóka sig á námskeið þar sem eru biðlistar.