Óháð ráðgjöf um fjarskipta- og upplýsingatækni
Í heimi þar sem stöðugar breytingar eiga sér stað þurfa fyrirtæki og einstaklingar aðstoð við að bregðast við breytingunum hratt og örugglega. Tölvu- og verkfræðiþjónustan hefur veitt íslenskum fyrirtækjum óháða ráðgjöf um fjarskipta- og tölvumál frá árinu 1986. Vegna þess að við seljum ekki lausnir og höfum ekki hagsmuna að gæta við val lausna geta þeir, sem til okkar leita, treyst því að hagsmunir þeirra einna eru hafðir að leiðarljósi.

Óháð tölvuráðgjöf

Óháð fjarskiptaráðgjöfFjölbreytt reynsla og mikil þekking
Reynsla okkar af ráðgjöf spannar flest stærstu svið íslensks atvinnulífs, sjávarútveg, fjármálaheiminn, iðnað og framleiðslu, verslun, heilbrigðisgeirann, sveitarfélög, opinberar stofnanir og opinber fyrirtæki. Mikil breidd er í þekkingu starfsmanna okkar, allt frá vali á ritvinnsluhugbúnaði upp í útboð, samninga og verkeftirlit á stórum hugbúnaðar- og tölvukerfum.
Ráðgjafar okkar hafa fjölbreytta menntun og reynslu úr atvinnulífinu sem nýtist við ráðgjöf okkar við fyrirtæki.

Helstu svið ráðgjafar
Við bjóðum ráðgjöf um flest sem viðkemur fjarskiptum og tölvutækni. Meðal helstu þekkingarsviða okkar má telja:

  • Ráðgjöf vegna nýjunga og þróunar.
  • Gerð öryggisstefnu og áætlana um samfelldan rekstur
  • Heildarúttekt á rekstri tölvu- og fjarskiptamála.
  • Aðstoð við stjórnun tölvu- og fjarskiptamála.
  • Greining á heildarkostnaði við tölvurekstur (Total Cost of Ownership
  • Stefnumótun í fjarskipta og tölvumálum.
  • Þafagreining fyrir síma-, fjarskipta-, tölvu- og hugbúnaðarkerfi.
  • Netskipulagning.
  • Ráðgjöf um uppbyggingu veraldarvefja og netlausna.
  • Gerð útboðsgagna, útboð, val samstarfsaðila og samningagerð.
  • Verkeftirlit með innleiðingu tölvu- og fjarskiptakerfa og við hugbúnaðargerð.

Listinn hér að ofan er ekki tæmandi. Leitaðu því nánari upplýsinga hjá okkur um þá ráðgjöf sem við getum veitt í síma 520 9000 eða með því að smella á veftengla sem eru á þessari síðu.
Allar nánari upplýsingar gefur:
Halldór Kristjánsson, framkvæmdastjóri.